Grunnskólar
Samræmd próf í 4., 7. og/eða 10. bekk eru haldin í 190 skólum á landinu öllu. Skólar sem eru með 10. bekk hafa undanfarin ár verið 135-140 talsins en skólar sem eru með 4. og/eða 7. bekk eru um 180-185 talsins.
Stærð árganga getur verið nokkuð breytileg en algengt er að 4100-4500 nemendur þreyti samræmd próf þegar um er að ræða allan árganginn.
Framkvæmd
Í 4. og 7. bekk eru samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði. Þau eru haldin í október ár hvert. Öllum nemendum er skylt að þreyta samræmdu könnunarprófin njóti þeir ekki undanþágu frá próftöku samkvæmt reglugerð.
Í 10. bekk er boðið upp á samræmd lokapróf í sex greinum, íslensku, stærðfræði, ensku, dönsku, samfélagsfræði og náttúrufræði. Prófin eru haldin í maí ár hvert. Nemendum sem eru veikir á prófdegi er boðið upp á sjúkrapróf. Sjúkrapróf eru haldin einni til tveimur vikum eftir aðalpróf.
Skráning í samræmd lokapróf 10. bekkjar fer fram á tímabilinu 1. september til 15. janúar ár hvert. Skólastjóri ber ábyrgð á að nemendur skrái sig til prófs og sér til þess að staðfesting forsjáraðila fylgi skráningu.
Skólastjórar skulu sjá til þess að nemendalistar með nöfnum og kennitölum allra nemenda 10. bekkjar ásamt bekkjarheiti berist framkvæmda aðila prófanna eigi síðar en 1. október. Eigi síðar en 15. febrúar ár hvert skulu skólastjórar senda nöfn þeirra nemenda sem skrá sig í hvert samræmt próf til framkvæmda aðila á þar til gerðum nemendalistum sem framkvæmda aðili leggur þeim til.
10. bekkur
Með reglugerð nr. 414/2000 um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra lokaprófa í 10. bekk var nemendum í 10. bekk grunnskóla gefinn kostur á að þreyta samræmd próf í allt að sex námsgreinum.
Tilgangur samræmdra lokaprófa er að:
- veita nemendum og forsjáraðila þeirra upplýsingar um námsárangur og námsstöðu.
- vera viðmið fyrir inntöku í framhaldsskóla.
- athuga eftir því sem kostur er hvort námsmarkmiðum aðalnámskrár í viðkomandi námsgrein hafi verið náð.
- veita upplýsingar um hvernig skólar standa í þeim námsgreinum sem prófað er úr.
4. og 7. bekkur
Í reglugerð nr. 415/2000 um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa í 4. og 7. bekk segir: Samræmd próf í íslensku og stærðfræði skulu lögð fyrir samtímis í öllum 4. og 7. bekkjum grunnskóla. Tilgangur samræmdra prófa í 4. og 7. bekk er að:
- athuga eftir því sem kostur er, hvort námsmarkmiðum aðalnámskrár í viðkomandi námsgrein eða námsþáttum hafi verið náð.
- vera leiðbeinandi um áherslur í kennslu fyrir einstaka nemendur.
- veita nemendum, forsjáraðila og skólum upplýsingar um námsárangur og námsstöðu nemenda.
- veita upplýsingar um hvernig skólar standa í þeim námsgreinum sem prófað er úr, miðað við aðra skóla landsins.
Prófhefti/svör
Námsmatsstofnun hefur haft þann sið að birta á netinu prófhefti samræmdra prófa ásamt matsreglum prófa síðastliðinna fjögurra ára. Prófheftin koma á vefinn strax að loknu prófi en matsreglurnar þegar einkunnir hafa verið afhentar.
|