Námskeið í þróun og notkun Bendils
Bendill er ný rafræn áhugakönnun sem þróuð er frá grunni hérlendis.
Um tvær áhugakannanir er að ræða Bendil-I sem ætluð er nemendum í efsta bekk grunnskólans
og Bendil-II sem ætluð er ungu fólki á framhaldsskólaaldri (sjá nánar á www.bendill.is )
Námskeið verður haldið eftir þörfum. Áhugasamir hafi samband með vefpósti á namsmat@namsmat.is
Forkröfur og réttindi
Aðeins þeir sem eru með menntun á sviði náms- og starfsráðgjafar eða sambærilega menntun
(sem tekur til ráðgjafar/meðferðar, starfsþróunarkenninga og próf/matsfræða) geta sótt námskeiðið og notað Bendil
eftir að námskeiði lýkur. Námskeiðið veitir rétt bæði til að nota Bendil-I (10. bekkur) og Bendil-II (framhaldsskólanemar).
Verð á námskeiði og gögnum
Námskeið kr. 20.000
Handbók og önnur gögn kr. 5000
Kennari er Sif Einarsdóttir
|