Í LEIT AÐ STARFI.
Námskeið um íslensku útgáfuna af SDS.


    Til baka 

Þátttakendur:
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja sérhæfa sig í notkun áhugasviðsmælingar
með prófinu Í LEIT AÐ STARFI og geta nýtt sér íslensk meðaltöl og
hlutfallstölur fyrir aldurshópana 16 til 20 ára. Námskeiðið hentar þeim sem
fást við ráðgjöf tengda vali á starfssviði eða námsbraut svo sem fulltrúum
vinnumiðlana, náms- og starfsráðgjöfum, ráðingarstjórum, og
starfsmannastjórum. Athugið að íslenska útgáfa prófsins hentar best til
fyrirlagnar í aldurshópunum 17 ára og eldri.

Kennarar:
Brynhildur Scheving Thorsteinsson, sálfræðingur.

Skilyrði fyrir notkun Í leit að starfi:
Grundvallarþekking á kenningu John L. Holland um áhugasvið og persónugerðir er skilyrði. Einnig er nauðsynlegt að þátttakendur hafi grunnþjálfun eða reynslu í notkun áhugasviðskannana byggðum á kenningum Holland.

Efni:
Íslensk staðfærsla og stöðlun áhugasviðsprófsins SDS var gefin út sumarið
2004 og ber nafnið Í LEIT AÐ STARFI. Fjallað verður um gildi staðfæringar og
stöðlunar á prófum. Varpað verður ljósi á íslenska úrtakið þ.e. nemendur sem
svöruðu Í LEIT AÐ STARFI. Skoðaðir verða styrkleikar og veikleikar
áhugasviðskönnunarinnar í ljósi stöðu hennar í dag. Þátttakendur munu einnig
kynnast prófinu náið og æfa nokkra útreikninga byggða á niðurstöðum
könnunarinnar.

Staður:
Kennt verður í húsnæði Námsmatsstofnunar í Reykjavík, Borgartúni 7a.

Tími:
Næsta námskeið verður haldið 22. okt. 2010 kl. 12:30 til 16:30.


Verð:
Námskeiðið kostar 13.200 kr. Innifalið er kennsla, kennslugögn og hressing í
kaffihléi. Greiðsla fer þannig fram að þátttakendur fá sendan reikning að loknu námskeiði.

www.namsmat.is  namsmat@namsmat.is Sími: 550-2400  Fax: 550-2401 Borgartúni 7a, 105 Reykjavík