Til baka
Þátttakendur:
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja sérhæfa sig í notkun áhugasviðsmælingar
með prófinu Í LEIT AÐ STARFI og geta nýtt sér íslensk meðaltöl og
hlutfallstölur fyrir aldurshópana 16 til 20 ára. Námskeiðið hentar þeim sem
fást við ráðgjöf tengda vali á starfssviði eða námsbraut svo sem fulltrúum
vinnumiðlana, náms- og starfsráðgjöfum, ráðingarstjórum, og
starfsmannastjórum. Athugið að íslenska útgáfa prófsins hentar best til
fyrirlagnar í aldurshópunum 17 ára og eldri.
Kennarar:
Kennarar:
Brynhildur Scheving Thorsteinsson, sálfræðingur.
Skilyrði fyrir notkun Í leit að starfi:
Grundvallarþekking á kenningu John L. Holland um áhugasvið
og persónugerðir er skilyrði. Einnig er nauðsynlegt
að þátttakendur hafi grunnþjálfun eða
reynslu í notkun áhugasviðskannana byggðum á
kenningum Holland.
Efni:
Íslensk staðfærsla og stöðlun áhugasviðsprófsins
SDS var gefin út sumarið
2004 og ber nafnið Í LEIT AÐ STARFI. Fjallað verður
um gildi staðfæringar og
stöðlunar á prófum. Varpað verður ljósi
á íslenska úrtakið þ.e. nemendur sem
svöruðu Í LEIT AÐ STARFI. Skoðaðir verða
styrkleikar og veikleikar
áhugasviðskönnunarinnar í ljósi stöðu
hennar í dag. Þátttakendur munu einnig
kynnast prófinu náið og æfa nokkra útreikninga
byggða á niðurstöðum
könnunarinnar.
Staður:
Kennt verður í húsnæði Námsmatsstofnunar í Reykjavík, Borgartúni 7a.
Verð:
Námskeiðið kostar 14.500 kr. Innifalið er kennsla, kennslugögn og hressing í
kaffihléi. Greiðsla fer þannig fram að þátttakendur fá sendan reikning að loknu námskeiði.
|