Fyrirhugað er að halda námskeið
í fyrirlögn og túlkun málþroska prófanna
TOLD-2P OG TOLD-2I, ef næg þátttaka fæst.
Námskeiðið er eingöngu ætlað fyrir talmeinafræðinga/talkennara
og sérkennara með framhaldsmenntun í fyrirlögn
og túlkun greinandi prófa.
Námskeiðið er í tveimur hlutum, alls 20 kennslustundir
þar af eru 8 stundir heimavinna.
Á fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað um
uppbyggingu prófanna, almennar reglur um fyrirlögn og fyrirgjöf.
Einnig verður farið í grunnatriði er varða túlkun.
Á seinni hluta námskeiðsins verður farið nánar
í túlkun niðurstaðna, áreiðanleika og
réttmæti og unnið úr heimaverkefnum. Auk þess
verður farið í ýmis atriði sem hafa þarf
í huga til að niðurstöður verði sem marktækastar.
Niðurstöður TOLD prófanna sem greiningartækis
fyrir lestrarörðugleika verða bornar saman við niðurstöður
annarra prófa s.s. HLJÓM-2 og lestrargreiningartækisins
LOGOS.
Í lokin verður unnið úr heimaverkefnum.
Umsjón með námskeiðinu hefur Ingibjörg Símonardóttir, talmeinafræðingur/M Ed í sérkennslu.
Námskeiðið er haldið í húsakynnum Námsmatsstofnunar í Borgartúni 7a.
Þátttökugjald er 33.000 kr.
ATH. Nauðsynlegt er að þátttakendur hafi prófið með sér á námskeiðið.
Athygli er vakin á því að þátttakendur fá TOLD-2P og TOLD-2I málþroskaprófin með 10% afslætti.
Hægt er að panta prófin hér
Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Námsmatsstofnun í síma 550-2400 og einnig má senda fyrirspurnir á netfang: namsmat@namsmat.is
|