Námskeið í fyrirlögn, mati og túlkun WPPSI-R IS:
Námskeið er fyrirhugað 24. sept.2012 kl. 9-15 (ef næg þátttaka fæst).
Rétt er að taka fram að þátttaka í námskeiðinu er ekki forsenda notkunar prófsins.
Allir sálfræðingar geta keypt og notað prófið hérlendis óháð þátttöku í námskeiðinu.
Aftur á móti er tímanum vel varið með þátttöku í námskeiði þar sem farið verður yfir margvísleg atriði í prófinu sem allir verða að kynna sér áður en þeir byrja að nota staðlaða útgáfu þess hérlendis.
Mörgu hefur verið breytt í erlendri útgáfu og fyrir liggja athuganir á eiginleikum prófsins hérlendis sem ekki hafa verið kynntar.
Að auki verða kynnt gögn úr íslenskri stöðlun, sem ekki eru í handbók, en nýtast vel við túlkun prófsins eins og til dæmis þversniðgreiningu undirprófa og prófþátta.
Þátttaka í námskeiðinu ætti að auka öryggi í fyrirlögn, mati og túlkun á prófinu.
Þátttökugjald er kr. 24.000.-
Námskeiðin eru haldin í húsakynnum Námsmatsstofnunar í Borgartúni 7a.
Kennari er Einar Guðmundsson. .