|
Próf í íslensku
fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt.
Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan
ríkisborgararétt verður haldið tvisvar á ári, að vori og hausti. Prófið miðast
við lokamarkmið í grunnnámi í íslensku fyrir útlendinga (240 stundir), samkvæmt
námskrá menntamálaráðuneytisins. Markmiðin eru eftirfarandi:
Umsækjandi þarf því:
- að geta bjargað sér við daglegar aðstæður í skóla, vinnu og einkalífi;
- að geta bjargað sér við óvæntar
aðstæður
- að hafa öðlast nægilegt vald á
orðaforða til að geta tekið þátt í umræðum um kunnugleg málefni
- að geta skilið einfaldar samræður
milli manna;
- að geta lesið stutta texta á einföldu máli um kunnugleg efni
- að geta skrifað stuttan texta á einföldu máli um kunnugleg efni
- að geta greint aðalatriði í
ljósvakamiðlum, sjónvarpi og útvarpi, þegar um kunnugleg efni er að ræða.
Í prófunum skal reynt á tal, hlustunarskilning, ritun og lesskilning.
Ekki verður gefin einkunn, heldur aðeins tilkynnt hvort próftaki
hafi staðist lágmarkskröfur.
Fyrirkomulag prófa:
- Fyrstu prófin verða 30. nóv. 2009 klukkan 8.15 og 13.15
og verður prófað í þeirri viku.
- Próftaki getur valið prófdag og tíma.
- Prófið er skriflegt og munnlegt.
- Skriflega prófið tekur um eina klukkustund.
- Eftir skriflega prófið fá próftakar tíma í munnlega prófið sama dag. Munnlega prófið tekur allt að 15 mínútum.
- Sýnishorn af prófverkefnum eru hér
- Prófað verður í Reykjavík og verður staður auglýstur síðar.
Ef næg þátttaka fæst þá verður einnig boðið upp á próf á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði
Próftakar þurfa að skrá sig í síðasta
lagi 10. nóvember og greiða próftökugjaldið
inn á reikning Námsmatsstofnunar tveimur vikum fyrir prófdag.
Próftökugjald er kr. 7000
Kennitala Námsmatsstofnunar er 550584-0429
og bankareikningsnúmerið er 326-13-5510
Þegar greitt er þarf að koma fram nafn og kennitala próftaka.
Ef greiðandi er annar en próftaki þurfa þessar upplýsingar að koma fram í skýringu með greiðslunni.
|
NÝTT! Staða skráingar
núna
Próf hefjast 30. nóv. 2009 í Reykjavík
Skráning er til 10. nóvember. 2009
Skráning er framvegis í síma Námsmatsstofnunar: 550 2400
Næst verða prófin haldin í júní 2010
|