
17.12.2007
Þann 8. og 22. janúar voru haldnir opnir umræðufundir hjá Námsmats-stofnun um PISA. Fundirnir voru mjög vel sóttir af aðilum sem starfa á sviði menntamála, við fræðimennsku, stjórnsýslu og kennslu.
Fundirnir eru öllum opnir og ætlað að efla umræðu um PISA niðurstöðurnar og aðrar niðurstöður um stöðu grunnskólamenntunar í landinu. Næsti fundur er þriðjudaginn 5. feb en fundirnir eru haldnir annan hvern þriðjudag í sal Námsmatsstofnunar að Borgartúni 7A, Rvk.

17.12.2007
Fyrstu niðurstöður í 4. og 7. bekk. HÉR

07.12.2007
Samræmd próf í 4. og 7. bekk.
Úrvinnsla á niðurstöðum samræmdra prófa í 4. og 7. bekk er enn í fullum gangi. Skönnun er nú að fullu lokið og úrvinnsla langt komin. Stefnt er að því að niðurstöðurnar verði sendar til skóla í lok næstu viku (fimmtudag eða föstudag).
Skil á niðurstöðum verða nú síðar en kveðið er á um í reglugerð um samræmd próf í 4. og 7. bekk. Þykir starfsmönnum Námsmatsstofnunar leitt að seinkun verði á skilum.
07.12.2007
Námsmatsstofnun hefur gefið út tvö ný rit um túlkun á WISC-IVIS.
- Einar Guðmundsson (2007). WISC-IV. Mælitala vitsmunastarfs. Íslensk aldursviðmið. Reykjavík: Námsmatsstofnun. Verð: 8.000.-
- Einar Guðmundsson (2007). WISC-IV. Mælitala klínískra klasa.
Íslensk aldursviðmið. Reykjavík: Námsmatsstofnun. Verð: 7.000.-
Hægt er að panta bæði ritin hjá Námsmatsstofnun. Nánari upplýsingar

05.12.2007
PISA 2006 – Fyrstu niðurstöður
Niðurstöður úr PISA 2006 rannsókninni voru kynntar þann 4. desember síðastliðinn. Þá kom jafnframt út skýrsla Námsmatsstofnunar um hinn íslenska hluta niðurstaðnanna og er hægt að nálgast skýrsluna hér. Jafnframt er skýrslan fáanleg prentuð gegn vægu verði hjá Námsmatsstofnun. Á heimasíðu OECD er jafnframt hægt að nálgast frekari upplýsingar um rannsóknina, ásamt því að hægt er að fá alþjóðlegu skýrsluna þar á pdf formi.
PISA 2006 Íslensk - skýrslan í heild sinni
Leiðréttingar - hér
PISA 2006 alþjóðleg skýrsla.
Í PISA 2006 var lögð áhersla á mælingu á frammistöðu nemenda í náttúrufræði, en einnig var hluti prófsins endurtekning á mælingum á stærðfræði og lesskilningi
Myndin af stöðu Íslands í lesskilningi, stærðfræði og náttúrufræði er hvorki svört né hvít, sumir hlutir virðast vera í mjög góðu horfi í hinu íslenska skólakerfi, samtímis því að svigrúm virðist vera fyrir verulega breytingar á öðrum sviðum. Frammistaða 15 ára nemenda hér á landi virðist almennt vera í meðallagi miðað við OECD löndin, en nokkuð mismunandi eftir greinum. Þegar litið er til breytinga yfir tíma, sýnir rannsóknin að íslenskum 15 ára nemendum virðist vera að fara aftur í lesskilningi og er þá miðað við breytingar frá árinu 2000 þegar fyrsta PISA mælingin átti sér stað. Einnig er nokkur lækkun á frammistöðu í stærðfræði frá árinu 2003.
Rannsóknin sýnir einnig að kynjamunur er nú minni en oft áður og einungis marktækur munur á piltum og stúlkum í lesskilningi. Á Íslandi hefur frammistaða einstakra landshluta einnig breyst frá PISA 2003 og sýna Vestfirðir, og Norðurland Eystra og Vestra nú bestu frammistöðuna. Um frekari niðurstöður vísast til skýrslu Námsmatsstofnunar. 26.11.2007
PIRLS
(Progress in International Reading Literacy Study)
Alþjóðleg rannsókn um lesleikni
Miðvikudaginn 28. nóvember næstkomandi kl. 14:45 til 16:00 mun Námsmatsstofnun kynna niðurstöður PIRLS alþjóðlegu rannsóknarinnar á lesleikni 10 og 11 ára barna. Unnið hefur verið að þessari rannsókn undanfarin 4 ár. 40 lönd tóku þátt í rannsókninni sem stjórnað er af IEA-International Association for the Evaluation of Educational Achievement.
Ísland tók þátt í rannsókninni 2001 og aftur árið 2006. Kynntar verða helstu niðurstöður rannsóknarinnar árið 2006 ásamt þeim breytingum sem orðið hafa frá 2001.
PIRLS rannsóknin mælir lesleikni á umfangsmikinn hátt og skoðar getu nemenda á mörgum sviðum lestrar. Rannsóknin beinist að þremur þáttum:
* Lesleikni, að geta lesið, skilið og nýtt sér texta
* Lestri texta af ólíkum toga, bókmenntatexta og fræðilegs texta
* Lestrarvenjum og viðhorfi til lestrar
Gögnum var einnig safnað um skóla, kennslu og frá foreldrum.
Kynningarfundurinn verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík við Sigtún og verður öllum opinn.
17.10.2007
Samræmd próf í 4. og 7. bekk verða haldin dagana 18. og 19. október. Fimmtudaginn 18. október verður prófað í íslensku og í stærðfræði föstudaginn 19. október. Um það bil 4200 nemendur í 4. bekk munu þreyta próf og um það bil 4300 nemendur í 7. bekk.
Yfirferð og úrvinnsla prófniðurstaðna fer fram í október og nóvember. Einkunnir munu berast nemendum og foreldrum/forráðamönnum þeirra í byrjun desembermánaðar. Prófhefti nemenda verða send skólum öðru hvoru megin við jól og sjá skólar um að koma þeim áfram til nemenda og foreldra/forráðamanna. Rafrænar útgáfur af prófheftum verða aðgengilegar hér á vefsíðu Námsmatsstofnunar mánudaginn 22. október en matsreglur verða settar inn á vefinn á sama tíma og einkunnir verða sendar út. Upplýsingar um meðaltöl einstakra skóla verða tilbúnar eigi síðar en 31. janúar næstkomandi.
14.08.2007
Vegna dræmrar þátttöku hafa eftirfarandi námskeið verið felld niður: WPPSI-R Námskeið í fyrirlögn, mati og túlkun sem vera átti mánudaginn 20. ágúst og WISC-IV Námskeið um nýju íslensku útgáfuna sem vera átti 30. - 31. ágúst 2007. Þeim sem hafa áhuga er bent á að skrá sig á námskeið sem haldin verða í janúar 2008. Jafnframt er stefnt að því að námskeið verði haldin haustið 2008.
1.6.2007
Fyrstu niðurstöður úr samræmdum prófum í 10. bekk 2007. Smellið hér 02.05.2007
Samræmd próf í 10. bekk 2007
Samræmd próf í 10. bekk verða birt á vefnum daginn eftir prófdag hvers fags.
18.12.2006
Afhending prófúrlausna
Athygli foreldra og skóla er vakin á því að breyting hefur verið gerð á því með hvaða hætti prófúrlausnir samræmdra prófa í 4. og 7. bekk berast nemendum og foreldrum. Héðan í frá verða allar prófúrlausnir sendar aftur í skólana og skólinn sér um að koma þeim til nemenda og/eða foreldra/forráðamanns eigi síðar en að tveimur mánuðum liðnum. Þessi breyting (reglugerð nr. 934/2006) er samkvæmt nýlegri breytingu á reglugerð um samræmd próf í 4. og 7. bekk (reglugerð nr 415/2000).
Tilgangur þessarar breytingar er tvíþættur, annars vegar að gera kennurum kleift að nýta prófúrlausnir nemenda við kennslu í þeim tilvikum sem ávinningur er talinn þar af og hins vegar að skapa eðlilegri farveg til að fleiri nemendur og foreldrar/forráðamenn fái að berja augum prófúrlausnir en verið hefur.
Stefnt er að því að úrlausnir verði sendar frá Námsmatsstofnun um miðjan janúar næstkomandi. 04.12.2006.
Tilkynning
Niðurstöður könnunarprófanna í 4.- og 7. bekk 2006 verða póstlagðar fimmtudaginn 14. desember.
Beðist er velvirðingar á þessari seinkun.
29.11.2006.
Útgáfa WISC-IV greindarprófsins.
Íslensk útgáfa greindarprófsins Wechsler Intelligence Scale for Children kom út hjá Námsmatsstofnun í dag 29. nóvember.
Íslensk staðalbinding þessa mikilvægasta greiningartækis sálfræðinga hefur verið í gangi undanfarin fimm ár í samvinnu Sálfræðingafélags Íslands og Námsmatsstofnunar, með stuðningi menntamálaráðuneytis, félagsmálaráðuneytis- og heilbrigðisráðuneytis.
WISC-IV prófið mælir vitsmunaþroska barna á aldrinum 6-16 ára með fjölbreytilegum aðferðum. Prófið er einstaklingspróf og er samsett úr 14 undirprófum sem sýna vitsmunastarfsemi barnsins á ólíkum sviðum greindar. Prófið metur meðal annars orðskilning, almenna þekkingu, reikning, þrautalausnir, rökhugsun, (vinnslu)minni og hversu barnið er fljótt að leysa ýmis verkefni. Prófið er fyrst og fremst notað til að meta þroskafrávik hjá börnum á grunnskólaaldri og nýtist við greiningu námsörðugleika, greiningu þroskafrávika og ýmissa geð- og taugajúkdóma ásamt því að vera ómetanlegt tæki við greiningu taugasálfræðilegra frávika af flestu tagi. Jafnframt er unnt með prófinu að meta styrk- og veikleika barnsins á afmörkuðum sviðum.
WISC-IV prófið er að öðrum prófum ólöstuðum, mikilvægasta greiningartæki sálfræðinga sem starfa við skólakerfið, félagsþjónustuna og ekki síst sálfræðinga sem starfa við greiningu og meðferð barna á vegum heilbrigðiskerfisins. Við stöðlun og staðfærslu prófsins fyrir íslenskar aðstæður var það lagt fyrir um 900 börn á aldrinum 6 til 16 ára. Hver prófun tók um 3-4 klukkustundir. Þannig liggur að baki útgáfunnar vinna fjölmargra sálfræðinga, ásamt vinnu starfsmanna Námsmatsstofnunar sem hafa stýrt verkinu og búið prófið til útgáfu á Íslandi.
Verk af þessu tagi eru dýr og erfið í framkvæmd og án stuðnings framangreindra ráðuneyta og sérlega menntamálaráðuneytisins sem hefur sérstaklega stutt Námsmatsstofnun við þetta verk, hefði þessi útgáfa aldrei orðið að veruleika.
Því er ljóst að með tilkomu þessa mælitækis mun greiningarvinna sálfræðinga verða verulega auðveldari og áreiðanlegri og mun mælitækið þannig stuðla að bættri greiningu, úrræðum og meðferð og þannig auka og bæta þá þjónustu sem sálfræðingar veita. Nánari upplýsingar um prófið, verð þess og pantanir á prófinu má finna á heimasíðu Námsmatsstofnunar undir liðnum stöðluð próf.
20.11.2006.
Tilkynning
Fyrirsjáanlegt er að niðurstöður könnunarprófanna í 4.- og 7. bekk 2006 koma ekki til með að liggja fyrir, fyrr en í fyrsta lagi í fyrstu viku í desember.
Beðist er velvirðingar á þessari seinkun.
11.10.2006.
Breyting vegna frávika nemenda með lestrarerfiðleika
Námsmatsstofnun hefur samkvæmt tilmælum menntamálaráðuneytisins ákveðið breytingu á úrræðum fyrir nemendur með alvarlegan lestrarvanda. Ákvörðunin er tekin í samhengi við væntanlega endurskoðun á fyrirkomulagi stuðningsúrræða og undanþága fyrir nemendur með lestrarvanda og nær því eingöngu til samræmdra könnunarprófa í 4. og 7. bekk haustið 2006.
Ákveðið hefur verið að telji foreldrar og viðkomandi kennari að nemendur með lestrarvanda muni bera skaða af því að taka lesskilningshluta íslenskuprófsins með núverandi fyrirkomulagi, sé þeim heimilt að sleppa þeim hluta prófsins.
Þar sem stutt er til prófsins og prófgögn hafa þegar verið send í skóla utan höfuðborgarsvæðis telur Námsmatsstofnun illframkvæmanlegt að setja í gang sérstakt umsóknar- og skráningarferli vegna þessarar ákvörðunar. Því verður farin sú leið að skráningarblað fyrir þá nemendur sem sleppa lestrarhluta prófsins verður sent skólastjórnendum fimmtudaginn 12. október. Þeir fylla það út og láta fylgja prófgögnum þegar þau verða send Námsmatsstofnun.
Sjá má bréf menntamálaráðherra er lýtur að þessu máli á slóðinni
http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Frettatilkynningar/nr/3724
Fyrir hönd Námsmatsstofnunar
Sigurgrímur Skúlason

20.09.2006.
WPPSI-RIS Námskeið 9. október 2006
Námskeið ífyrirlögn, mati og túlkun WPPSI-RIS verður haldið í húsnæði Námsmatsstofnunar að Borgartúni 7 þann 9. október næstkomandi kl. 9:00 –15:00.
Á námskeiðinu er farið yfir margvísleg atriði í prófinu sem allir verða að kynna sér áður en þeir byrja að nota staðlaða útgáfu þess hérlendis. Mörgu hefur verið breytt í erlendri útgáfu og fyrir liggja athuganir á eiginleikum prófsins hérlendis sem ekki hafa verið kynntar. Að auki verða kynnt gögn úr íslenskri stöðlun, sem ekki eru í handbók, en nýtast vel við túlkun prófsins eins og til dæmis þversniðgreiningu undirprófa og prófþátta.
Þátttaka í námskeiðunum ætti að auka öryggi í fyrirlögn, mati og túlkun á prófinu.
23.08.2006.
Næsta námskeið um áhugasviðskönnunina Í LEIT AÐ STARFI verður haldið 15. september 2006 (sjá nánar undir Stöðluð próf).

20.06.2006.
Gerð og framkvæmd samræmdra prófa 
20.06.2006.
Minnisblað um samræmd próf í kjölfar umræðu og gagnrýni undanfarinna daga. Meira
20.06.2006.
Minnisblað um gagnrýni á samræmt próf í íslensku sem fram kom í grein Finns Torfa Hjörleifssonar og birtist í Morgunblaðinu þann 7. júní með fyrirsögninni: “Svona á ekki að semja próf”. Meira

11.05.2006.
Sjúkrapróf samræmdu prófanna verða haldin 15.-22. maí-Röð prófanna verður: Íslenska, stærðfræði, enska, norðurlandamál, samfélagsgreinar og náttúrufræði.
Nemendur í Reykjavík og nemendur í Grunnskóla Seltjarnarness verða prófaðir í Réttarholtsskóla. Nemendur í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi verða prófaðir í Garðaskóla. Aðrir nemendur verða prófaðir í sínum heimaskólum. Öll prófin hefjast klukkan 09:00.
24.2.2006
Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að hætta við samræmd stúdentspróf í núverandi mynd. Því verða engin próf af því tagi vorið 2006. Fréttatilkynning ráðuneytisins um málið fer hér á eftir:
Samræmd stúdentspróf í framhaldsskólum felld niður í núverandi mynd.
Menntamálaráðherra hefur ákveðið að fella niður samræmd stúdentspróf í framhaldsskólum í núverandi mynd. Stefnir ráðherra að því að leggja fram á vorþingi frumvarp þar sem lagt verður til að fella úr gildi ákvæði 24. gr. laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla sem á sínum tíma voru samþykkt samhljóða á Alþingi.
Við framkvæmd samræmdra stúdentsprófa árið 2005 komu í ljós ýmsir annmarkar, s.s. að nemendur sáu lítinn tilgang með prófunum, lítil merki sáust þess að skólar á háskólastigi kölluðu eftir því að nemendur hefðu lokið slíkum prófum svo og að prófin hentuðu misvel einstökum nem-endum og ólíkum skólum. Einnig er ljóst að framhaldsskólar áttu í ýmsum erfiðleikum með að bæta samræmdum stúdentsprófum við viða-mikið prófahald sem þar hefur tíðkast um árabil, bæði í lok vor- og haustmisseris.
Fyrr á þessu ári skipaði menntamálaráðherra starfshóp um námsmat á framhaldsskólastigi og hefur hann nú skilað niðurstöðu sinni. Í starfs-hópnum áttu sæti fulltrúar ráðuneytisins, Félags framhaldsskóla-kennara, forstöðumaður Námsmatsstofnunar, fulltrúi Félags íslenskra framhaldsskóla, fulltrúi Hagsmunaráðs íslenskra framhaldsskólanema og fulltrúi Samstarfsnefndar háskólastigsins.
Hópurinn var sammála um að leggja bæri af núverandi fyrirkomulag samræmdra prófa sem tíðkast hefur síðastliðin tvö ár.
Jafnframt leggur hópurinn til að kannaður verði möguleiki á að tekin verði upp einstakl-ingsmiðuð tölvuvædd könnunarpróf. Slík próf gefi möguleika á að koma til móts við þarfir einstakra nemenda og skóla, ásamt því að geta nýst viðtökuskólum og fræðsluyfirvöldum. Tilgangur könnunarprófanna væri fyrst og fremst að veita nemendum og skólum upplýsingar um stöðu einstakra nemenda í viðkomandi námsgrein þannig að unnt yrði að taka mið af því í áframhaldandi námi nemandans.
Í ljósi reynslunnar af samræmdum stúdentsprófum í núverandi mynd og áforma um breytta námsskipan til stúdentsprófs telur menntamála-ráðherra rétt að breytingar verði gerðar á fyrirkomulagi samræmdra stúdentsprófa.
3.02.2006.
Meðaltal skóla.
Námsmatsstofnun vinnur að breytingu á framsetningu á niðurstöðum úr samræmdum prófum sem lúta að skólum. Markmiðið er að leggja áherslu á einstaka skóla og þróa yfirlit sem sýnir stöðu skólans yfir lengra tímabil. Áfram verður lögð áhersla á að tengja framfaratölur og fyrri frammistöðu við meðaltali hvers árs. Með þeirri framsetningu, sem nú er unnið að, er lögð áhersla á einstaka skóla með sérstakri síðu fyrri hvern þeirra. Þar verða teknar saman niðurstöður 4., 7. og 10. bekkjar yfir nokkur ár í senn. Dreginn verður fram ferill hvers árgangs og lögð meiri áhersla á framfarir en unnt hefur verið hingað til þegar einungis hafa verið birtar niðurstöður eins árs í senn.
Þessi vinna hefur reynst tímafrekari en reiknað var með og því ekki unnt að taka þessa vefsíðu í notkun nú þegar niðurstöður skóla í 4. og 7. bekk haustið 2005 eru birt. Engu að síður er stefnt að því að breytt framsetning á niðurstöðum skóla verði virk eins fljótt og auðið er.
24.01.2006.
Næsta námskeið í "'I LEIT AÐ STARFI" verður haldið að Borgartúni 7A föstudaginn 27. janúar n.k. kl 10 – 13:00.
17.01.2006.
Skráning nemenda í próf í vor.
Um þessar mundir eru nemendur að skila skráningarblöðum til skólanna vegna samræmdra prófa í 10. bekk. Í stað þess að stofnunin sendi skólum bekkjarlista eins og undanfarin ár, þar sem skólar færa inn skráningu nemenda, verður skráningin á netinu. Í lok þessarar viku verður opnað fyrir svæði þar sem skólar hafa aðgang með aðgangs- og lykilorði. Viðkomandi skóli velur bekk og skráir val nemenda. Þegar svæðið er tilbúið verður send tilkynning með nánari skýringum til allra skóla.
Sami háttur verður hafður á fráviksbeiðnum.

28.11.2005.
Mánudaginn 28. nóvember sl. voru niðurstöður úr samræmdum könnunarprófum í 4. og 7. bekk settar í póst. Skólunum berast einkunnablöð nemenda í lokuðu umslagi sem á að opna í viðurvist foreldra/forráðamanna. 26.08.2005.
Haustsending vegna samræmdra prófa fer úr húsi 5. september.
Athygli er vakin á nýmælum í frávikum.
Foreldrabréf vegna 4. og 7. bekkjar er komið á netið. 13.09.2005.
Uppbygging samræmdra prófa í 10. bekk 2006 er komin á netið. Sjá breytingar í stærðfræði.
27.09.2005.
Grunnskólakennarar
Kennarar óskast til yfirferðar á samræmdum könnunarprófum í 4. og 7.
bekk 2005.
Skilyrði er að viðkomandi hafi kennt
þessum árgöngum stærðfræði eða
íslensku.
Umsóknarfrestur er til 5. október
nk. Nánari upplýsingar eru veittar
hjá Námsmatsstofnun næstu daga í
síma 550 2400. Umsóknareyðublöð
fást hjá stofnuninni, Borgartúni 7a,
105 Reykjavík en einnig er hægt að
sækja um hér. Umsjón með stúdentsprófum
Námsmatsstofnun óskar eftir að
ráða kennara eða fólk með reynslu
af skólastarfi til að hafa umsjón
með samræmdu stúdentsprófi í
íslensku, ensku og stærðfræði
30. nóv-2. des nk.
Starfið felst í yfirsetu og eftirliti með
prófunum í framhaldsskólum víðs
vegar um landið. 06.06.2005.
Fyrstu niðurstöður um samræmd próf í 10. bekk sýna dreifingu einkunna í prófunum sex og meðaltöl eftir landshlutum. Þær má nálgast með því að smella hér. 04.06.2005.
Einkunnir á samræmdum prófum í 10. bekk: ný tímasetning.
Einkunnir á samræmdum prófum í 10. bekk verða tilbúnar strax á mánudagsmorgni. Skólastjórnendur geta sótt einkunnir á skrifstofu Námsmatsstofnunar að Borgartúni 7a kl 09:00 á mánudag. 02.06.2005.
Tilkynning um einkunnir á samræmdum prófum í 10. bekk
Gengið verður frá einkunnum á samræmdum prófum í 10. bekk um helgina. Skólastjórnendur geta sótt einkunnir á skrifstofu Námsmatsstofnunar að Borgartúni 7a kl 12:00 á mánudag. Verði einkunnir tilbúnar fyrr, verður það tilkynnt með tölvupósti og á vefsíðu Námsmatsstofnunar. 30.05.2005.
Stefnt er að því að niðurstöður samræmdra prófa í 10. bekk verði tilbúnar 6. til 8. júní nk. 11.03.2005.
Fyrstu niðurstöður samræmdra prófa í 4. og 7. bekk eru komnar á vefinn. meira 08.02.2005.
Sýnispróf samræmdra stúdentsprófa í ensku og stærðfræði eru komin á vefinn. meira 17.01.2005.
Opnaður nýr og endurbættur vefur Námsmatsstofnunar. 
07.12.2004.
Fyrstu niðurstöður úr PISA 2003 rannsókninni á frammistöðu íslenskra nemenda í lestri, stærðfræði og náttúrufræði liggja nú fyrir. meira 03.12.2004.
Samræmt stúdentspróf í íslensku. Um 900 nemendur tóku prófið. meira 19.11.2004.
Prófgreinar og prófdagar í 10. bekk grunnskóla. meira 19.11.2004.
Frestun samræmdra prófa í 4. og 7. bekk skólaárið 2004 - 2005. meira 16.06.2004.
Námsmatsstofnun flutti í nýrra og betra húsnæði að Borgartúni 7a þar sem aðgengi er betra og næg bílastæði. Jafnframt hefur stofnununin þar góða aðstöðu fyrir yfirferð prófa og aðra starfsemi.

|