Allar nánari upplýsingar um störf eru veittar hjá Námsmatsstofnun í síma 5502400
Almenn umsókn um starf hjá Námsmatsstofnun.
STARFSFÓLK ÓSKAST VIÐ PISA
Starfsfólk óskast við PISA rannsóknina vor 2012
Námsmatsstofnun leitar að: starfsfólki við alþjóðlega menntarannsókn OECD sem nefnist PISA (Programme for International Student Assessment). Rannsóknin fer fram á tímabilinu 27. febrúar til 30. mars 2012.
Starfið felst í fyrirlögn á prófi og spurningalista í 10. bekk grunnskóla. Starfið krefst fyrst og fremst öryggis í framkomu, reynslu af starfi með unglingum, skipulags og samstarfshæfileika.
Umsóknarfrestur er til 10. febrúar. Hafið samband við Óskar í síma 550-2400 eða með tölvupósti á Óskar.
Starfsfólk óskast við PISA rannsóknina sumar 2012
Námsmatsstofnun leitar að: starfsfólki í sumar við stóra alþjóðlega menntarannsókn OECD sem nefnist PISA (Programme for International Student Assessment). Í þessari rannsókn er metin færni grunnskólanemenda í lesskilningi stærðfræði og náttúrufræði.
Starfið felst í yfirferð á úrlausnum grunnskólanemenda á verkefnum ásamt tölvuinnslætti. Starfið krefst nákvæmni og góðra samstarfshæfileika.
Umsóknarfrestur er til 10. febrúar. Hafið samband við Óskar í síma 550-2400 eða með tölvupósti á Óskar.
|