Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt.

Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt verður haldið tvisvar á ári, að vori og hausti.  Prófið miðast við lokamarkmið í grunnnámi í íslensku fyrir útlendinga (240 stundir), samkvæmt námskrá menntamálaráðuneytisins. Nánar...

Í prófunum skal reynt á tal, hlustunarskilning, ritun og lesskilning.
Ekki verður gefin einkunn, heldur aðeins tilkynnt hvort próftaki hafi staðist lágmarkskröfur.

Fyrirkomulag prófa:

  • Prófið er skriflegt og munnlegt.
  • Skriflega prófið tekur um eina klukkustund.
  • Eftir skriflega prófið fá próftakar tíma í munnlega prófið sama dag. Munnlega prófið tekur allt að 15 mínútum.
  • Verði próftaki uppvís að svindli skal honum umsvifalaust vísað úr prófi. Öll samskipti við aðra próftaka eru bönnuð.
  • Sýnishorn af prófverkefnum eru hér

Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt vorið 2012:

Vikudagur Dagsetning Staður Próftími
 
Miðvikudagur 30. maí Akureyri 13:15
 
Fimmtudagur 31. maí Ísafjörður 13:15
 
föstudagur 1. júní Egilsstaðir 13:15
 
       
 
Mánudagur 4. júní Reykjavík 08:45
og
13:15
Þriðjudagur 5. júní Reykjavík 08:45
og
13:15
Miðvikudagur 6. júní Reykjavík 08:45
og
13:15
Fimmtudagur 7. júní Reykjavík 08:45
og
13:15
Föstudagur 8. júní Reykjavík 08:45
og
13:15

Skráningu fyrir prófin vorið 2012 hefst 10. mars og lýkur 10. maí

Borga þarf fyrir 11. maí til þess að skráning sé gild.

Það kostar 7000 krónur að taka prófið. Aðeins er hægt að borga í banka. Í heimabankanum á internetinu er hægt að borga svona:

Kennitala Námsmatsstofnunar er 550584-0429
og bankareikningsnúmerið er 0326-13-5510

Ef annar borgar fyrir próftaka þarf að senda skýringu með tölvupósti til Námsmatsstofnunar. Þar þarf að koma fram nafn og kennitala greiðanda ásamt nafni og kennitölu próftaka.

Gögn vegna lesblindu eða annarra ástæðna sem kynnu að hafa áhrif á prófið skal skilað til Námsmatsstofnunar fyrir 11. maí

Sérstök prófalota verður haldin fyrir þá sem skila inn slíkum greiningum.

Nauðsynlegt er að skrá sig símleiðis í slíkar próflotur.

Documents confirming dyslexia or other reading disabilities which might affect test performance,

should be sent to Namsmatsstofnun in advance, no later than May 11.

A special test session will be held for those examinees, therefore it is necessary to register by phone.

Próf á Reykjavíkursvæðinu

í Menntaskólanum í Kópavogi
Digranesvegi 51

Menntaskólinn í Kópavogi
Smellið til að sjá kort

Einnig er hægt að skrá sig hér í próf á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði

 

Skrá umsókn í fyrsta sinn

Lokað er fyrir skráningar

 

Ef þú hefur skráð þig áður

sláðu fyrst inn kennitöluna þína:

Kennitala:

Með því að smella hér getur þú breytt skráningu þinni eða hætt við:

Aðeins fyrir þá sem gefa upp netfang svo hægt sé að senda staðfestingu á breytingum

Skráningu lýkur 10. maí 2012